Jiko

Uppfært vörumerki og nýr vefur

Vefþróun

Hönnun

Mörkun

Jiko er fjártæknifyrirtæki sem býður viðskiptavinum sínum upp á sjálfvirka fjárfestingu í bandarískum ríkisvíxlum, sem hægt er að innleysa með auðveldum hætti hvenær sem er sólarhringsins.

Uppfært vörumerki

Fyrirtækið er staðsett í Bandaríkjunum, en er með þróunarteymi á Íslandi. Við höfum unnið með þeim að fjölbreyttum verkefnum og að þessu sinni tókum við að okkur að fríska upp á vörumerkið og hanna og smíða nýja vefsíðu Jiko.

Markmiðið með vinnunni við vörumerkið var að skerpa á staðsetningu fyrirtækisins á markaði, og að finna út úr því hvernig best væri að ávarpa tvo ólíka markhópa; annars vegar fjárstýringarteymi stórra fyrirtækja, sem höndla dagsdaglega með gríðarlega háar fjárhæðir og eru í viðskiptum við rótgrónar fjármálastofnanir, og hins vegar tæknilega þenkjandi stjórnendur fjármála- og fjártæknifyrirtækja sem gætu séð tækifæri í því að nýta grunnkerfi Jiko fyrir sína þjónustu.

Tvær hliðar

Litapallettan er íhaldssöm með bláum tónum og dröppuðum grunnlit, en cyan-blár áherslulitur gefur tengingu við tækniheiminn. Letrið sem við völdum heitir Saans frá Displaay Type, sterkt og fallegt letur með nútímalegan karakter.

Jiko er bæði banki, rótgróin fjármálastofnun með öllu sem því fylgir, og líka framsækið tæknifyrirtæki. Litirnir og letrið spila saman til að ná jafnvægi milli þessarra tveggja hliða fyrirtækisins.

Þjónustan

Kjarnavara Jiko er svokallaður Pocket, en það er viðskiptareikningur sem samanstendur af hefðbundnum bankareikningi og miðlarareikningi. Hér fer hún fram þessi sjálfvirka fjárfesting í ríkisvíxlum, en gagnvart notandanum virkar Pocket eins og hver annar bankareikningur.

Tvískipta O-ið í merki Jiko táknar þessa virkni, og við ákváðum að vinna með það áfram og gera táknið gegnumgangandi í formheimi vörumerkisins. Bakgrunnsgrafíkin sem einkennir útlitið byggir í grunninn á forminu, þar sem búið er að snúa því og hreyfa það á hátt sem hefur tengingu við virknina sjálfa í kerfinu.