Securitas

Heimavörn, fyrir mikilvægasta staðinn í veröldinni

Vöruþróun

Hönnun

Vefþróun

Notendaupplifun

Heimavörn er kjarnaþjónusta Securitas fyrir einstaklinga og fjölskyldur. Við hönnuðum og þróuðum nýtt söluflæði sem gerir viðskiptavinum auðvelt að panta þjónustu sem er sniðin að þeirra þörfum.

Lendingin

Meginhluti verkefnisins var að búa til sérsmíðað sölukerfi og sjálfsafgreiðsluflæði, til að leysa af hólmi gamla góða handvirka kerfið með símtölum og heimsóknum á skrifstofutíma.

Sem inngang í þetta flæði gerðum við lendingarsíðu með ítarlegum upplýsingum um það hvað felst í þjónustunni, hvernig hún virkar og hvaða þjónustuleiðir eru í boði.

Flæðið

Eitt af markmiðum verkefnisins var að ná til breiðari hóps viðskiptavina, og að geta boðið fólki þjónustu sem hentar þeirra heimili og aðstæðum. Í kaupflæðinu geturðu flett upp heimilisfangi og íbúðarhluta, svarað nokkrum einföldum spurningum um heimilið og fengið tillögu að þjónustuleið sem hentar.

Hægt er að bæta við búnaði og aukaþjónustu og nálgast upplýsingar um allt það helsta án þess að þurfa að fara út úr flæðinu.

Við reyndum að stytta og einfalda ferlið eins og kostur var og draga úr hindrunum. Tímabókun og útfyllingu ítarupplýsinga höfðum við í aukaflæði eftir að búið er að ganga frá pöntuninni, með möguleikanum á að ljúka því strax eða geyma þar til síðar.