GRID
Nýr vefur og uppfært vörumerki
Vefþróun
Framendi
Hönnun
Mörkun
GRID er íslenskt sprotafyrirtæki sem hefur tekið gamla, góða töflureikninn sem við þekkjum öll og gætt hann ofurkröftum á ýmsa vegu. Nú með nýstárlegri tengingu við gervigreind.
Skoða Grid
Verkefnið
Við höfum átt í góðu samstarfi við fólkið hjá GRID í gegnum árin. Nýverið vildu þau gera breytingar á ásýnd fyrirtækisins og á vöruframboðinu.
Við uppfærðum vörumerkið með nýrri litapallettu, letri og heildaryfirbragði í takt við breyttar áherslur um staðsetningu á markaði.



Áherslur
Nýi vefurinn þurfti að dekka tvær ólíkar þarfir; annarsvegar að vera andlit fyrirtækisins, fyrir fjárfestatengsl og um GRID sem vinnustað, og hinsvegar til að kynna vöruna sjálfa.
Fyrirtækjahlutinn fékk ljóst og létt yfirbragð, með ljósmyndum og litríkri grafík, á meðan vöruhlutinn varð dekkri og tæknilegri til að undirstrika eðli og eiginleika vörunnar.

Ljóst og dökkt
Hluti af vinnunni við að uppfæra vörumerkið var að búa til grafík og formheim til að binda saman efni frá GRID í mismunandi miðlum. Grafíkin hefur vísun í reiknilíkanið sem knýr töflureiknivélina, og virkar bæði í bjartari litum og dekkri tónum eftir samhengi.
Vefurinn sjálfur er byggður á Dato CMS með áherslu á að auðvelt sé að gera breytingar og viðbætur eftir því sem fyrirtækið þróast og vex áfram.


